4.1.2008 | 23:43
Gullkorn dagsins
Tvenn gullkorn sem komu mér í gott skap í dag:
1) Ég er að lesa ævisögu Dolly Parton, og þar segir hún um allt bling-bling og meik sem hún jú er fræg fyrir: "Well, you have no idea how expensive it is to look this cheap". Dásamleg setning !
2) Ég var að koma úr sturtu, og þar sem ég strippalingaðist um íbúðina hitti ég son minn, sem rak augun í frekar langt ör sem ég ber með stolti eftir að hafa fætt tvö börn með keisaraskurði. Hann velltir því fyrir sér afhverju mamma sé með "bátti", og ég sagði honum að þarna hefðu nú hann og Davíð komið út úr maganum mínum. "Jaaaaá" segir hann og heldur sínum ferðum áfram. Seinna erum við að borða kvöldmatinn, og þá horfir hann lengi vel á matinn sinn og svo mig, og segir svo "Mamma, kom kjúklingurinn líka úr maganum þínum?". Enn seinna ásakaði hann mig um að hafa stungið bíl sem hann var að leita að inn um "báttið", og að lokum spurði hann hvort að ég væri líka með bleyjur þarna inni. Annaðhvort er hann ekki alveg að skilja mig, eða þá hefur mittismálið mitt aukist svona mikið um jólin að hann heldur að ég sé með allar birgðir hemilisins þarna inni......
Athugasemdir
Jóna Á. Gísladóttir, 5.1.2008 kl. 00:19
Dásamleg saga
Takk fyrir innlitið. Og gleðilegt ár...
Auður H Ingólfsdóttir 5.1.2008 kl. 10:49
Dolly rokkar feitt, ekki spurning!
Og já, stolt ber ég líka keisaraskurðinn eftir Jóa minn, en að vísu sagði ég honum að ég hefði keypt hann í Kolaportinu :D.....á tilboði!
Erna Lilliendahl, 5.1.2008 kl. 11:02
Hahaha, og ég sem hef stundum hugsað mér að selja mína á tilboði !!!
María Tómasdóttir, 5.1.2008 kl. 11:16
HAHAHAH!
snilld!
Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 7.1.2008 kl. 12:04
Gleðilegt ár elsku frænka.
Biða að heilsa öllum gullkornakrúttunum
Helga frænka 7.1.2008 kl. 17:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.